Barcelona hefur sagt knattspyrnustjóranum og áður einum sigursælasta leikmanni félagsins, Xavi, upp störfum. Hann hafði sjálfur tilkynnt í janúar að hann myndi láta af störfum í sumar, snerist svo hugur í síðasta mánuði en mun stýra sínum síðasta leik á morgun
Barcelona hefur sagt knattspyrnustjóranum og áður einum sigursælasta leikmanni félagsins, Xavi, upp störfum. Hann hafði sjálfur tilkynnt í janúar að hann myndi láta af störfum í sumar, snerist svo hugur í síðasta mánuði en mun stýra sínum síðasta leik á morgun. Xavi tók við starfinu í nóvember árið 2021 og gerði Börsunga að Spánarmeisturum á síðasta ári. BBC Sport greinir frá því að Þjóðverjinn Hansi Flick taki við starfinu af Xavi.