Kleifur merkir sem unnt er að klífa. Margir hamrar voru ókleifir áður en nútíma klifurtól komu til sögunnar. Í yfirfærðri merkingu þýðir ókleift: óvinnandi, ógerlegt

Kleifur merkir sem unnt er að klífa. Margir hamrar voru ókleifir áður en nútíma klifurtól komu til sögunnar. Í yfirfærðri merkingu þýðir ókleift: óvinnandi, ógerlegt. „Ég hélt að rússneskunámskeiðið mundi gera mér kleift að lesa Kóraninn á frummálinu. En svo er það mér jafn ókleift og áður!“ Og ei er það, heillin, ekki „ey“.