Blanchett á rauða dreglinum.
Blanchett á rauða dreglinum. — IMDB/Steve Granitz
Tíska Leikkonan Kate Blanchett hefur hlotið mikið lof og athygli fyrir kjól sem hún klæddist á rauða dreglinum á Cannes-­kvikmyndahátíðinni. Við fyrstu sýn virtist kjóllinn einfaldur í svörtum lit, með hvítri bakhlið

Tíska Leikkonan Kate Blanchett hefur hlotið mikið lof og athygli fyrir kjól sem hún klæddist á rauða dreglinum á Cannes-­kvikmyndahátíðinni. Við fyrstu sýn virtist kjóllinn einfaldur í svörtum lit, með hvítri bakhlið. En er Blanchett lyfti bakhliðinni mátti sjá að að innanverðu var hún græn að lit. Á rauðum dreglinum var einfaldi kjóllinn því í fánalitum Palestínu og þar með augljós virðingarvottur við þá þjóð.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem leikkonan hefur tjáð sig um stríð Hamas og Ísraels. Síðastliðinn nóvember hélt Blanchett fram stuðningi við Palestínu og hvatti til tafarlauss vopnahlés á Gasa.