— Morgunblaðið/Eyþór
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sendi tvo dælubíla til að slökkva eld í rútu sem stóð alelda á bílastæði fyrir aftan Hótel Cabin í Borgartúni í Reykjavík í gærkvöldi. Ekki þótti vera hætta á að eldurinn gæti breiðst út í aðrar bifreiðar og fór svo …

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sendi tvo dælubíla til að slökkva eld í rútu sem stóð alelda á bílastæði fyrir aftan Hótel Cabin í Borgartúni í Reykjavík í gærkvöldi. Ekki þótti vera hætta á að eldurinn gæti breiðst út í aðrar bifreiðar og fór svo að rútan brann nærri til kaldra kola þar sem hún stóð mannlaus. Varðstjóri slökkviliðs telur að rútan hafi verið númeralaus, en óvíst er hvert ástand hennar var fyrir eldinn.