Ráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Ráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson er fjármála- og efnahagsráðherra. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á Gran Canaria á Kanaríeyjum fór fram á veitingastaðnum Why Not Lago í gær og gekk vel, að sögn Guðbjargar Bjarnadóttur, eiganda Why Not Lago. Þá kusu 41 utankjörfundar á Gran Canaria í gær og 15 á miðvikudag

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á Gran Canaria á Kanaríeyjum fór fram á veitingastaðnum Why Not Lago í gær og gekk vel, að sögn Guðbjargar Bjarnadóttur, eiganda Why Not Lago. Þá kusu 41 utankjörfundar á Gran Canaria í gær og 15 á miðvikudag.

Guðbjörg segir atkvæðagreiðsluna hafa gengið vel en að ekki hefðu allir skilað sér á kjörstað sem fóru fýluferð að kjósa fyrir viku. Ýmist hafi fólk ekki lagt í að gera sér aðra ferð til að kjósa eða hafi verið farið í frí annað.

„Það mega allir vera glaðir, þetta tókst og við erum með og það er það sem skiptir máli,“ segir Guðbjörg.

Mikill vandræðagangur hefur verið að halda utankjörfundaratkvæðagreiðsluna á Kanaríeyjum. Fyrst um sinn reyndust kjörseðlarnir of fáir, og bárust aðeins 40 kjörseðlar fyrir eyjarnar allar.

Á föstudaginn fyrir viku fóru nokkrir Íslendingar fýluferð á kjörstað á Kanaríeyjum vegna skorts á kjörseðlum. Guðbjörg segir að þá hafi á bilinu 70 til 80 manns mætt á kjörstað á Gran Canaria sem ekki fengu að kjósa.

Aftur þurfti að fresta atkvæðagreiðslu eftir að 100 kjörseðlar virtust týndir, þeir komu þó fljótlega í leitirnar og fundust í flokkunarstöð DHL í Madríd.