Íslandsmeistarar Lið Stjörnunnar fagnar Íslandsmeistaratitlinum í gær.
Íslandsmeistarar Lið Stjörnunnar fagnar Íslandsmeistaratitlinum í gær. — Ljósmynd/FSÍ
Kvennalið Stjörnunnar tryggði sér sigur á Íslandsmótinu í hópfimleikum sem fram fór í íþróttahúsi Gróttu á Seltjarnarnesi í gær. Liðið stóð sig einkar vel á öllum áhöldum og stóð uppi sem sigurvegari með því að vinna sér inn alls 54.300 stig

Kvennalið Stjörnunnar tryggði sér sigur á Íslandsmótinu í hópfimleikum sem fram fór í íþróttahúsi Gróttu á Seltjarnarnesi í gær.

Liðið stóð sig einkar vel á öllum áhöldum og stóð uppi sem sigurvegari með því að vinna sér inn alls 54.300 stig.

Lið Stjörnunnar og Gerplu hafa verið með yfirburði í kvennaflokknum síðastliðin ár og í gær varð engin breyting þar á. Í öðru sæti varð lið Gerplu með 52.350 stig og í því þriðja lið Selfoss með 51.800 stig.

Stjörnustúlkur gerðu sér lítið fyrir og lönduðu Íslandsmeistaratitlinum á öllum áhöldum með yfirburðum.

Hæstu einkunn mótsins hlaut Stjarnan á gólfi með 19.800 stig, á dýnu fékk liðið 17.900 stig og á trampólíni 16.600 stig.

Fimm kvennalið og eitt blandað lið mættu til keppni á Íslandsmótinu í gær; Gerpla, Grótta, ÍA, Selfoss og Stjarnan. Gerpla var með eina blandaða liðið og varð Íslandsmeistari með því að vinna sér inn 39.550 stig.