„Ég hef unnið mikið úti með manni sem heitir Simon Burt. Konan hans, Zoe, er mjög góð vinkona mín og ég er oft uppi í sófa hjá þeim þegar ég fer til Englands,“ sagði söngkonan Emilíana Torrini í Ísland vaknar um nýju plötuna sína

„Ég hef unnið mikið úti með manni sem heitir Simon Burt. Konan hans, Zoe, er mjög góð vinkona mín og ég er oft uppi í sófa hjá þeim þegar ég fer til Englands,“ sagði söngkonan Emilíana Torrini í Ísland vaknar um nýju plötuna sína. „Þau sendu mig svo oft upp til móður Zoe, sem var glæsileg og flott kona. Við drukkum kokteila og spjölluðum mikið. Því miður lést hún um daginn, ég fór til Bretlands að hjálpa til og þá finnst þessi kassi af bréfum. Þá kemur í ljós að konan, Miss Flower, fékk til dæmis níu bónorð en giftist aldrei og var einstæð móðir. Hún var rosaleg skutla.“ Það tók þær vinkonur dágóða stund að fara í gegnum öll bréfin frá fyrrverandi elskhugum Miss Flower. „Við fundum það út að maðurinn sem hún er lengst með, sem er hennar sálufélagi, hún skilur hann eftir við altarið.“ Lestu meira á K100.is.