Sigursæll Pep Guardiola hefur sópað að sér titlum með liði City.
Sigursæll Pep Guardiola hefur sópað að sér titlum með liði City. — AFP/Oli Scarff
Manchester City getur orðið fyrst enskra knattspyrnufélaga til að ná einstökum árangri með því að vinna granna sína í Manchester United í úrslitaleik bikarkeppninnar í dag. Verði City bikarmeistari vinnur liðið tvöfalt, þ.e

Manchester City getur orðið fyrst enskra knattspyrnufélaga til að ná einstökum árangri með því að vinna granna sína í Manchester United í úrslitaleik bikarkeppninnar í dag. Verði City bikarmeistari vinnur liðið tvöfalt, þ.e. bæði deildina og bikarinn, tvö ár í röð. Það hefur ekkert félag afrekað frá stofnun ensku deildakeppninnar árið 1889. Manchesterliðin mættust líka í úrslitaleik bikarkeppninnr á Wembley í fyrra og þá hafði City betur, 2:1.