Saga Sveinsdóttir 11 ára Björgvin Óskarsson 8 ára Hákon Óli Björnsson 9 ára Matthías Kristján Magnason 12 ára Jón Ólafur Pálsson 7 ára

Fyrir tveimur vikum áttuð þið að leysa krossgátu og var rétt svar Lífið er lag sem við syngjum saman tvö. Dregið var úr réttum lausnum og fá hinir heppnu bókina syrpa – Kristalskonungsríkið í verðlaun.

Í þessari viku eigið þið að tengja saman samsett orð. Lausnina skrifið þið niður á blað og sendið inn fyrir 2. júní. Þá eigið þið möguleika á að vinna bókina ósk.

Munið að láta fylgja með upplýsingar um nafn, aldur og heimilisfang.

Þið getið sent lausnina á netfangið barnabladid@mbl.is eða sent bréf með pósti á Morgunblaðið – Hádegismóum 2, 110 Reykjavík.