Hye Joung Park
Hye Joung Park
Hye Joung Park opnar í dag sýningu sína Viðloðun í Listasal Mosfellsbæjar og stendur hún til 21. júní. Segir í tilkynningu að á sýningunni kanni hún efnis­kennd leirs í skúlp­túragerð og varpi upp hugrænni mynd af tilverunni í hnattrænum heimi, þar…

Hye Joung Park opnar í dag sýningu sína Viðloðun í Listasal Mosfellsbæjar og stendur hún til 21. júní. Segir í tilkynningu að á sýningunni kanni hún efnis­kennd leirs í skúlp­túragerð og varpi upp hugrænni mynd af tilverunni í hnattrænum heimi, þar sem rými og tímaskynjun nútímamanna séu sundurliðuð með fjarlægð, en á sama tíma tengd. Hye Joung Park er fædd í Suður-Kóreu og kom til Íslands í fyrsta sinn sem skiptinemi 1997.