Á tónleikaferðalagi
Á tónleikaferðalagi — AFP/Christine Olsson
Klúður Taylor Swift er líklega ýmsu vön þegar tónlistarbransinn er annars vegar, enda ein vinsælasta söngkona heims. Nú er hún á tónleikaferðalagi, Eras tour, þar sem hún ferðast víðsvegar um Evópu. Hún hélt nýverið tónleika í Stokkhólmi í Svíþjóð

Klúður Taylor Swift er líklega ýmsu vön þegar tónlistarbransinn er annars vegar, enda ein vinsælasta söngkona heims. Nú er hún á tónleikaferðalagi, Eras tour, þar sem hún ferðast víðsvegar um Evópu. Hún hélt nýverið tónleika í Stokkhólmi í Svíþjóð. Swift lenti þar í vandamáli með hljóðnema og þurfti að svipta af sér kjólnum til þess að geta betur lagað hljóðtækin. Stjarnan var þó í klæðnaði undir, sem átti ekki að koma í ljós fyrr en í næsta atriði. Swift lét þetta ekki slá sig út af laginu og hlaut mikið lof áhorfenda fyrir að hafa náð að bjarga sér úr vandræðum á þennan hátt.