Vespa Hollande á vespunni.
Vespa Hollande á vespunni.
Vespa sem Francois Hollande, fyrrverandi forseti Frakklands, notaði til að hitta þáverandi hjásvæfu sína og núverandi eiginkonu, Julie Gayet, seldist á uppboði fyrir 20.500 evrur, eða sem samsvarar þrem milljónum íslenskra króna, í gær

Vespa sem Francois Hollande, fyrrverandi forseti Frakklands, notaði til að hitta þáverandi hjásvæfu sína og núverandi eiginkonu, Julie Gayet, seldist á uppboði fyrir 20.500 evrur, eða sem samsvarar þrem milljónum íslenskra króna, í gær.

Denis Breheret er eigandi bílasafns og keypti vespuna. Vill hann að vespan verði til sýnis á bílasafninu svo að allir geti notið hennar.

Árið 2014 varð uppi mikið hneykslismál þegar Hollande, þáverandi forseti Frakklands, fór reglulega á vespunni til að eyða nóttinni með Gayet. Á þessum tíma var Hollande í sambandi með blaðakonunni Valerie Trierweiler. Hollande og Trierweiler slitu sambandi sínu fljótlega eftir að framhjáhaldið kom í ljós. birta@mbl.is