Verkfall Samningaviðræður verkfallsaðila hafa ekki borið árangur og bendir fátt sem ekkert til þess að samningar séu í augsýn í Færeyjum.
Verkfall Samningaviðræður verkfallsaðila hafa ekki borið árangur og bendir fátt sem ekkert til þess að samningar séu í augsýn í Færeyjum.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Kári Freyr Kristinsson karifreyr@mbl.is „Þetta hefur áhrif á allt,“ segir Baldvin Harðarson, íbúi í Þórshöfn, spurður hvort verkföllin í Færeyjum hafi áhrif á hans daglega líf.

Kári Freyr Kristinsson

karifreyr@mbl.is

„Þetta hefur áhrif á allt,“ segir Baldvin Harðarson, íbúi í Þórshöfn, spurður hvort verkföllin í Færeyjum hafi áhrif á hans daglega líf.

Verkafólk þarlendis hefur verið í verkfalli frá 11. maí eða í rúmar tvær vikur. Félagsmenn í Føroya arbeiðarafelagi, Havnar arbeiðarafelagi, Klaksvíkar arbeiðskvinnufelagi og Klaksvíkar arbeiðsmannafelagi lögðu niður vinnu 11. maí.

„Það er næstum því á hverjum degi sem einhverjum skóla er lokað,“ segir Baldvin. Skýringin sé sú að vegna verkfallsins hafi ekki verið hægt að þrífa skólana. Hann segir að nánast allt verkafólk í Færeyjum sé í verkfalli.

„Það eru margir metrar af tómum hillum í matvöruverslunum,“ segir Baldvin aðspurður. Nánast alls staðar sé eldsneyti uppselt hvort sem það er bensín eða díselolía.

Þingið grípur ekki inn í

„Skip sigla bara fram hjá, eins og til dæmis frá Eimskip og Samskipum. Þú getur ekki bundið skip við bryggju einu sinni,“ segir Baldvin. Hafnarstarfsmenn séu ein af þeim stéttum sem eru í verkfalli.

Baldvin segir að framleiðsla á mjólk hafi fengið undanþágu frá verkfallinu.

Spurður hvort ekki fari að sjá fyrir endann á verkföllunum svarar Baldvin því neitandi. „Það kom tillaga fram í síðustu viku og þeir höfnuðu því.“

Baldvin segir að engar umræður séu um að þingið ætli að grípa inn í með lagasetningu. „Þetta verður nokkuð erfitt reikna ég með.“

Merkilega gott andrúmsloft

„Það er merkilega gott finnst mér,“ segir Baldvin, spurður hvernig andrúmsloftið sé í samfélaginu vegna verkfallsins. Hann segist ekki geta gefið skýrt svar við því.

„Það virðist vera góð verkfallsvakt og að þeir [starfsmenn] njóti mikillar virðingar. Það eru engin læti í neinum,“ segir hann.

Baldvin segir að viðbragðsaðilar séu þeir einu sem fá að fylla bensíntankinn á bifreiðunum. „Þeir sem hafa ekki bensín á bílnum og komast því ekki til vinnu fá ekki laun,“ segir Baldvin.

Höf.: Kári Freyr Kristinsson