— Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Hitinn á Húsavík mældist 21,5 gráður á laugardag. Húsvíkingar nutu góðveðursins og skelltu sér ýmist í sund eða stukku í sjóinn. Hátt í 200 bæjarbúar mættu í sundlaugina á Húsavík og er það stærsti dagur ársins í lauginni hingað til

Hitinn á Húsavík mældist 21,5 gráður á laugardag. Húsvíkingar nutu góðveðursins og skelltu sér ýmist í sund eða stukku í sjóinn. Hátt í 200 bæjarbúar mættu í sundlaugina á Húsavík og er það stærsti dagur ársins í lauginni hingað til. Mikið líf var í bænum yfir helgina og lögðu margir leið sína niður að höfn til að njóta sólarinnar þar. Þá var fullt á flestum veitingastöðum bæjarins.

Hitinn mældist nokkuð hár víðast hvar í Eyjafirði um helgina en á Akureyri mældist hitinn 18 gráður á laugardag. Sólin heldur áfram að leika við landsmenn næstu daga en þó mælist hitinn ekki eins hár og um helgina.

Í dag er spáð 16 gráðum á Egilsstöðum og verður skýjað með köflum. Á þriðjudag er spáð hægri breytilegri átt, dálítilli rigningu eða súld vestast og austast á landinu.