Halldóra Salóme fæddist 2. desember 1940. Hún lést 4. maí 2024.

Útför hennar fór fram 17. maí 2024.

Í dag kveðjum við félagskonur í Kvenfélagi Garðabæjar Halldóru Salóme Guðnadóttur.

Halldóra Salóme starfaði með félaginu um árabil og var alla tíð virk félagskona, dugleg og vinsæl meðal félagskvenna. Hún var varaformaður í fjögur ár á tímabilinu 1981 til 1985 og var gerð að heiðursfélaga árið 2019.

Að leiðarlokum þökkum við Halldóru Salóme fyrir störf hennar í þágu Kvenfélags Garðbæjar og vottum börnum hennar og ástvinum samúð okkar.

Blessuð sé minning Halldóru Salóme Guðnadóttur.

Halldóra Björk
Jónsdóttir, formaður.