Þórsmörk Langidalur í Þórsmörk.
Þórsmörk Langidalur í Þórsmörk. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sveitarstjórn Rangárþings eystra vill kanna fýsileika þess að stofnaður verði þjóðgarður á Þórsmerkursvæðinu. Elvar Eyvindsson, formaður skipulags- og umhverfisnefndar Rangárþings eystra, sagði við Morgunblaðið að málið væri enn á hugmyndastigi en…

Sveitarstjórn Rangárþings eystra vill kanna fýsileika þess að stofnaður verði þjóðgarður á Þórsmerkursvæðinu.

Elvar Eyvindsson, formaður skipulags- og umhverfisnefndar Rangárþings eystra, sagði við Morgunblaðið að málið væri enn á hugmyndastigi en sveitarstjórnin vilji kanna hvaða kostir og gallar fylgi því að friðlýsa Þórsmörk sem þjóðgarð. „En ég held að allir séu sammála um að þetta verði aldrei gert nema það verði á forræði heimamanna,“ sagði Elvar. » 14