Þýfi Peningatöskurnar fundust.
Þýfi Peningatöskurnar fundust.
Lögreglan fær enn til sín upplýsingar um peninga í umferð í tengslum við þjófnaðinn í Hamraborg í Kópavogi en tveir mánuðir eru liðnir frá þjófnaðinum. Heimir Ríkharðsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir peninga hafa…

Lögreglan fær enn til sín upplýsingar um peninga í umferð í tengslum við þjófnaðinn í Hamraborg í Kópavogi en tveir mánuðir eru liðnir frá þjófnaðinum. Heimir Ríkharðsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir peninga hafa fundist sem ataðir eru í lit eftir litasprengju og aðrir sem búið er að klippa að hluta. Ekki er vitað með vissu hversu hárri fjárhæð var stolið, en hún er talin vera einhvers staðar á milli 20 og 30 milljónir króna.

Rannsókn lögreglu heldur áfram sem og vinnsla gagna sem safnað hefur verið.