Norður
♠ 62
♥ Á84
♦ ÁKG10
♣ 10962
Vestur
♠ 743
♥ G92
♦ D964
♣ ÁK3
Austur
♠ DG9
♥ K1073
♦ 72
♣ G874
Suður
♠ ÁK1085
♥ D65
♦ 953
♣ D5
Suður spilar 3G.
Joe Grue svaf á verðinum. Grue hélt á spilum vesturs og lagði niður laufás gegn 3G. Suður (Bobby Levin) hafði opnað á 1♠ og sýnt jafna skiptingu til hliðar í næsta hring. Austur (Brad Moss) vísaði laufinu frá og Grue skipti yfir í hjarta. Moss fékk slaginn á kóng og sótti litinn áfram.
Spilið er frá úrslitaleik Nickells og Fleishers í bandarísku landsliðskeppninni, sem Fleisher og félagar unnu (Grue, Moss, Bathurst, Hurd, Martel og Fleisher). Levin drap á hjartadrottningu heima og svínaði í tígli. Spilaði svo laufi á drottningu og kóng.
Kannski var að frávísun makkers í fyrsta slag, kannski bara þreyta, en alla vega spilaði Grue núna meira laufi og Levin átti níu slagi. Ef vestur brýtur hjartað þarf sagnhafi að djúpsvína í spaða frekar en að sækja laufslaginn. Langsótt, enda fór spilið fór niður á hinu borðinu með þeirri vörn.