Jens Þórðarson segir að kynning á verkefninu fari fram þessa dagana.
Jens Þórðarson segir að kynning á verkefninu fari fram þessa dagana. — Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri landeldisfyrirtækisins Geo Salmo í Þorlákshöfn, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að framkvæmdafé fyrirtækisins verði í bland bankafjármögnun og hlutafé. „Í raun erum við að safna fé í tveimur til þremur skrefum

Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri landeldisfyrirtækisins Geo Salmo í Þorlákshöfn, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að framkvæmdafé fyrirtækisins verði í bland bankafjármögnun og hlutafé.

„Í raun erum við að safna fé í tveimur til þremur skrefum. Nú erum við með hlutafjáraukningu í gangi sem kemur til viðbótar þeim tveimur milljörðum króna sem við söfnuðum í forútboði síðastliðið haust. Þá voru þátttakendur Skel fjárfestingafélag, Úthafsskip, eigendur Eskju ásamt norsku iðnaðarsamsteypunni Endúr ASA og tengdum aðilum, ásamt hollenska fiskvinnslu- og dreifingarfyrirtækinu Adri & Zoon.“

Samstarfsaðilar Geo Salmo í yfirstandandi hlutafjáraukningu eru Arion banki og norsku bankarnir DNB og Sparebanken 1.

„Við erum að kynna verkefnið fyrir fjárfestum þessa dagana. Það gengur mjög vel. Fjármögnunin ætti að klárast á næstu mánuðum.“

Spurður almennt um hvernig gangi að safna fé til starfseminnar og hvernig fjárfestar meti áhættuna í verkefninu segist Jens finna fyrir áhuga á greininni.

„Fólk hefur litið á þetta sem áhættusama fjárfestingu en við svörum því með því að velja tækni og útfærslu sem er margreynd annars staðar. Við byggjum á mjög góðri reynslu hjá teyminu okkar. Við teljum að við getum brugðist afar vel við þeim áhættuþáttum sem upp koma í svona verkefnum. Við höfum fengið ágætis viðbrögð við því.“