30 ára Kristinn ólst upp á Seltjarnarnesi en býr í Reykjavík. Hann er stúdent frá Kvennaskólanum í Reykjavík og er framkvæmdastjóri á Gistiheimilinu Aurora. Áhugamálin eru ferðalög, tölvuleikir, hitta vini og fótbolti, en Kristinn spilaði fótbolta…

30 ára Kristinn ólst upp á Seltjarnarnesi en býr í Reykjavík. Hann er stúdent frá Kvennaskólanum í Reykjavík og er framkvæmdastjóri á Gistiheimilinu Aurora. Áhugamálin eru ferðalög, tölvuleikir, hitta vini og fótbolti, en Kristinn spilaði fótbolta með Gróttu og Kríu en spilar í dag bumbubolta með vinum.


Fjölskylda Maki Kristins er Veronika Caplová, f. 1994 í Tékklandi, MS í rekstrarhagfræði og starfar sem einkaþjálfari. Dóttir þeirra er Freyja Lilja, f. 2024. Foreldrar Kristins eru hjónin Sigurður Már Hilmarsson, f. 1966, og Dóra Þyri Arnardóttir, f. 1968. Þau reka eigið fyrirtæki og eru búsett á Seltjarnarnesi.