Grínistinn Andri Ívarsson segist ekki vera morgunhress en þrátt fyrir það var hann mættur eldsnemma í hljóðver K100 í Ísland vaknar. Hann segist þó þekkja litla morgunhressa konu. „Dóttir mín, hún er ekkert eðlilega morgunhress og það mikið að …

Grínistinn Andri Ívarsson segist ekki vera morgunhress en þrátt fyrir það var hann mættur eldsnemma í hljóðver K100 í Ísland vaknar. Hann segist þó þekkja litla morgunhressa konu. „Dóttir mín, hún er ekkert eðlilega morgunhress og það mikið að ég hef smá áhyggjur af henni.“ Andri segir uppistandið hafa fundið sig fyrir um níu árum síðan þegar hann prófaði að taka þátt í nokkrum viðburðum í bænum. „Ég fór og hugsaði, ég get alveg gert þetta. Svo kunni ég á gítar og gerði mikið gítargrín.“ Lestu meira á K100.is.