Færeyjar Búist er við að matvæli klárist ef ekki tekst að semja.
Færeyjar Búist er við að matvæli klárist ef ekki tekst að semja. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ekkert bólar á að samningar náist á milli vinnuveitenda og verkafólks í Færeyjum. Verkföll hafa staðið frá 11. maí. Florine, starfsmaður verslunarinnar Bónuss í Þórshöfn í Færeyjum, sagðist í samtali við Morgunblaðið óttast að búðin tæmdist ef ekki tækist að semja á næstu vikum

Birta Hannesdóttir

birta@mbl.is

Ekkert bólar á að samningar náist á milli vinnuveitenda og verkafólks í Færeyjum. Verkföll hafa staðið frá 11. maí.

Florine, starfsmaður verslunarinnar Bónuss í Þórshöfn í Færeyjum, sagðist í samtali við Morgunblaðið óttast að búðin tæmdist ef ekki tækist að semja á næstu vikum. Nú þegar eru allir grænmetiskælar verslunarinnar tómir og lítið eftir af frosnum vörum og brauðmeti.

Aðspurður hvernig viðskiptavinir hefðu tekið í þetta sagði hann: „Það eru eiginlega engir viðskiptavinir.“

Florine sagði íbúa Þórshafnar hafa búið sig undir verkföllin og hamstrað mat nokkrum dögum áður, ef ske kynni að verkföllin myndu standa yfir svona lengi.

Leigubílar fá ekki undanþágu

Matarskorturinn stafar m.a. af því að hafnarstarfsmenn eru í verkfalli og skip geta ekki lagst að bryggju með vörur.

Eins og Morgunblaðið greindi frá á mánudag er eldsneyti í Færeyjum uppselt sökum verkfallsins. Þá hafa mikil vandræði skapast á flugvellinum í Þórshöfn vegna þessa. Sömuleiðis geta engar rútur eða leigubílar keyrt ferðamenn á milli staða. Leigubílar óskuðu eftir undanþágu til að kaupa eldsneyti, en ekki var fallist á þá beiðni.

Fjölmiðlar í Færeyjum hafa greint frá því að einkarekin fyrirtæki þar séu byrjuð að selja eldsneyti á okurverði. Þar kostar lítrinn af bensíni 90 danskar krónur, eða sem nemur 1.800 íslenskum krónum.

Höf.: Birta Hannesdóttir