Hildur B. Hannesdóttir hefur gengið til liðs við ráðgjafateymið hjá Gott og gilt. Hildur kemur frá Isavia ANS þar sem hún starfaði sem öryggis- og gæðastjóri.
Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að Hildur búi yfir mikilli reynslu af mótun og viðhaldi stjórnunarkerfa hvort sem er fyrir öryggi, gæði eða vernd, og þekkingu á CSRD-reglugerð um birtingu sjálfbærniupplýsinga og þeim kröfum sem gerðar eru til skýrslu stjórnenda fyrirtækja á því sviði.
Gott og gilt veitir ráðgjöf og þjónustu á sviði mannauðsstjórnunar, túlkunar á kjarasamningum og vinnulöggjöf, launagreiningum og undirbúningi fyrirtækja fyrir jafnlaunavottun.