Emma Holm
Emma Holm
Ég skora á ráðherra að stöðva þessa lögleysu strax.

Emma Holm

Loksins þegar við höfum skynsaman heilbrigðisráðherra, ætlar þú sem dómsmálaráðherra að beita þér fyrir auknu aðgengi að áfengi? Ég veit að flokkurinn þinn stendur með Hagkaup og netverslunum í að hleypa áfenginu lausu frá ríkinu, en ég bind miklar vonir við að þú, sem kona og ráðherra dómsmála, beitir þér fyrir því að stöðva lögleysuna sem á sér stað fyrir allra augum. Áfengi selt á netinu og börn ginnt fyrir framan nefið á okkur. Hvar er kvenlegt innsæti þitt?

Ég vil benda á það að alkóhólistar sem hafa eytt vikum í meðferðum og reyna sitt allra besta til að halda sjúkdómnum í skefjum munu falla fyrir auknu aðgengi í fljótfærni. Og vítahringurinn lokast. Þeir sem geta leyft sér þann munað að drekka áfengi án vandræða geta ósköp vel skipulagt sig þannig að kaupa á afgreiðslutíma og geyma þar til tappinn er dreginn úr. En það geta sjúkir ekki. Þeir geta ekki beðið með að opna flöskuna.

Áfengisverslun ríkisins hefur opnað búðir í öllum hverfum og krummaskuðum á landinu og er með opið meira en gott þykir. Að mínu áliti ætti að stytta afgreiðslutímann og fækka búðunum. Heilbrigt fólk getur átt flösku í skáp þar til tækifæri gefst til að gera sér glaðan dag. En þeir sem eru veikir fyrir víni (og þeir eru mjög margir) ættu auðveldara með að sniðganga vín ef það væri ekki úti um allt. Þeir gætu e.t.v. sparað þjóðfélaginu nokkrar meðferðir. Eins ef þeir fá stuðning eftir meðferð. Ef dómsmálaráðherra ætlar að fela sig á bak við EES þá þurfum við bara undanþágu eða einfaldlega að fara úr því. Það nær engri átt að þeir ákveði hvernig Ísland fer með sína þegna. Það er fáránlegt að utanaðkomandi áhrif skuli ákvarða örlög íslensku þjóðarinnar.

En tvískinnungurinn endar ekki þar. Það er bannað að selja tóbak nema á sérstökum kössum, en veip-búðir hafa sprottið upp eins og gorkúlur og eru miskunnarlaust auglýstar og laða til sín unga fólkið okkar. Í stað þess að verða háður sígarettum þá eru það nikótínpúðar sem skemma tannholdið og eru ekki minna skaðlegir en gamla tóbakið. Ég skora á þig, ráðherra dómsmála, að stöðva þessa lögleysu strax og fara jafnvel hina leiðina og takmarka aðgengið enn meir. Ég veit að þetta snýst um að peningaöflin ýta á þetta eins og með spilakassana. Allt til að ýta undir veikleika þjóðar. Ef þú vilt fella þjóð – leyfðu þessu þá að gerast. Áfengi, veip og spilavíti er böl en ekki kostur. Sannaðu til.

Höfundur er fyrrverandi aðstandandi alkóhólista.