Allt gert klárt fyrir forsetakappræðurnar í dag Mikið er við haft í forsetakappræðunum, en þessi mynd var tekin í sal Morgunblaðsins í Hádegismóum í gær, þar sem tæknimenn og útsendingarlið mbl.is, Kukls, Extón og Trabants voru að gera allt klárt fyrir stóru stundina, þegar fimm efstu menn koma og svara spurningum blaðamanna Morgunblaðsins.
Allt gert klárt fyrir forsetakappræðurnar í dag Mikið er við haft í forsetakappræðunum, en þessi mynd var tekin í sal Morgunblaðsins í Hádegismóum í gær, þar sem tæknimenn og útsendingarlið mbl.is, Kukls, Extón og Trabants voru að gera allt klárt fyrir stóru stundina, þegar fimm efstu menn koma og svara spurningum blaðamanna Morgunblaðsins. — Morgunblaðið/Sonja
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Forsetakappræður Morgunblaðsins fara fram í dag og verða í beinu streymi á mbl.is klukkan 16.00. Gert er ráð fyrir að kappræðurnar standi yfir í rúma klukkustund. Fyrir svörum verða þeir fimm forsetaframbjóðendur sem hlotið hafa 10% fylgi í…

Forsetakappræður Morgunblaðsins fara fram í dag og verða í beinu streymi á mbl.is klukkan 16.00. Gert er ráð fyrir að kappræðurnar standi yfir í rúma klukkustund.

Fyrir svörum verða þeir fimm forsetaframbjóðendur sem hlotið hafa 10% fylgi í skoðanakönnunum eða meira: þau Baldur Þórhallsson prófessor, Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri, Halla Tómasdóttir forstjóri, Jón Gnarr leikari og Katrín Jakobsdóttir fv. forsætisráðherra. Engir frambjóðendur aðrir hafa náð 10% fylgi í þeim viðurkenndu skoðanakönnunum sem gerðar hafa verið í aðdraganda forsetakjörs.

Blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson munu beina spurningum til frambjóðendanna og leitast við að hafa umræður markvissar og hvassar.

Um nóg er að ræða; bæði um forsetaembættið og yfirlýst áform frambjóðenda á forsetastóli. Þeir hafa sumir lýst vilja til að halda áfram að þróa embættið og auka vægi þess í stjórnsýslu og þjóðmálaumræðu, en aðrir vilja leitast við að halda tryggð við þær hefðir sem um það hafa skapast og viðhalda stjórnfestu í því.

Þá verður einnig spurt út í ýmis álitamál sem vaknað hafa í kosningabaráttunni, jafnt um embættið, völd þess og ábyrgð, sem og frumkvæði forseta í landstjórninni, mótvægi og mörk.

Loks má þar vænta umræðu um framgöngu frambjóðenda, sem varpað getur ljósi á hvers vænta má af þeim í forsetaembætti þegar á reynir.

Ekki verður þó aðeins boðið upp á umræður frambjóðenda í kappræðunum. Í þættinum verða einnig kynntar glóðvolgar niðurstöður síðustu skoðanakönnunar sem Prósent gerir fyrir Morgunblaðið í þessari æsispennandi kosningabaráttu. Þar hefur gengið á ýmsu og fátt sem bendir til annars en að þar geti orðið frekari sviptingar í lokavikunni, en í síðustu könnun voru þrír efstu frambjóðendur hnífjafnir.