Mótmæli Strandveiðisjómenn krefjast þess að strandveiðum sé ráðstafað nægum aflaheimildum svo bátarnir geti veitt allt veiðitímabilið.
Mótmæli Strandveiðisjómenn krefjast þess að strandveiðum sé ráðstafað nægum aflaheimildum svo bátarnir geti veitt allt veiðitímabilið.
Strandveiðifélag Íslands hefur boðað til kröfufundar 7. júní næstkomandi í þeim tilgangi að krefjast þess að strandveiðibátarnir fái að stunda veiðar allt strandveiðitímabilið, en viðmiðið er 12 dagar í maí, júní, júlí og ágúst

Gunnlaugur Snær Ólafsson

gso@mbl.is

Strandveiðifélag Íslands hefur boðað til kröfufundar 7. júní næstkomandi í þeim tilgangi að krefjast þess að strandveiðibátarnir fái að stunda veiðar allt strandveiðitímabilið, en viðmiðið er 12 dagar í maí, júní, júlí og ágúst.

Eins og staðan var í gær voru strandveiðibátarnir búnir að landa um 40% af tíu þúsund tonna þorskkvóta sem veiðunum er ráðstafað og því fátt sem bendir til þess að heimildirnar dugi út tímabilið. Á síðasta ári þurfti að stöðva veiðar 12. júlí og árið á undan 21. júlí. Miðað við gang veiða hingað til eru aðeins 20 veiðidagar eftir.

„Nú stefnir allt í stöðvun í júlí þriðja árið í röð. Það væri með öllu óásættanlegt og yrði reiðarslag fyrir strandveiðimenn og brothættar byggðir hringinn í kringum landið. Sýnum samstöðu og látum ekki bjóða okkur slíka niðrandi framkomu þegjandi og hljóðlaust,“ segir í yfirlýsingu Strandveiðifélagsins vegna viðburðarins.

Hvetur félagið „vini og velunnara til að mæta og krefjast þess að umhverfisvænustu fiskveiðar við Íslands strendur fái að standa út vertíðina“.

Til stendur að safna liði við Hörpu í Reykjavík í hádeginu og ganga að Austurvelli. Svipað var einnig gert í júlí á síðasta ári eftir að veiðar voru stöðvaðar af Fiskistofu. Mætti þá fjöldi strandveiðisjómanna til að mótmæla.

Alls hafa um 700 bátar landað afla á strandveiðum í ár en 728 hafa fengið úthlutað leyfi til slíkra veiða. Mestum afla er landað á Vesturlandi, svokölluðu svæði A.

Þrátt fyrir að gengið hafi nokkuð á þorskinn þá er töluvert eftir af heimildum strandveiðanna í ufsa, um 950 tonn af þeim þúsund tonnum sem ráðstafað var í veiðarnar.