Gripið verður til lokana á bókasöfnum í Reykjavík í sumar til að mæta hagræðingarkröfu Reykjavíkurborgar. Öll átta söfn Borgarbókasafnsins verða lokuð til skiptis í sumar og má búast við skerðingu á þjónustu við notendur safnsins vegna þessa

Gripið verður til lokana á bókasöfnum í Reykjavík í sumar til að mæta hagræðingarkröfu Reykjavíkurborgar. Öll átta söfn Borgarbókasafnsins verða lokuð til skiptis í sumar og má búast við skerðingu á þjónustu við notendur safnsins vegna þessa. Lokanir standa yfir frá miðjum júní fram í miðjan ágúst.

Dagana 15. júní til 7. júlí verður lokað í Sólheimum, 1. júlí til 14. ágúst verður lokað í Klébergi, 6. júlí til 28. júlí verður lokað í Gerðubergi, Gróf og Spöng og 27. júlí til 18. ágúst verður lokað í Árbæ, Kringlu og Úlfarsárdal. Í tilkynningu frá Borgarbókasafni segir að notendur séu hvattir til að skila bókum á þau söfn sem eru opin hverju sinni. Sektir muni ekki reiknast á safnefni sem tilheyrir sérhverju safni á meðan það er lokað.