Útsaumur Anni Bloch.
Útsaumur Anni Bloch.
Kirsten Rosenvold Geelan, sendiherra Danmerkur á Íslandi, opnar sumarsýningu Listasafns Sigurjóns Ólafssonar í safninu í Laugarnesi á morgun, föstudag, kl. 16. „Á sýningunni sem nefnist Þræðir og þrívíð form eru þrívíð textílverk dönsku…

Kirsten Rosenvold Geelan, sendiherra Danmerkur á Íslandi, opnar sumarsýningu Listasafns Sigurjóns Ólafssonar í safninu í Laugarnesi á morgun, föstudag, kl. 16. „Á sýningunni sem nefnist Þræðir og þrívíð form eru þrívíð textílverk dönsku listakonunnar Anni Bloch og valdir skúlptúrar Sigurjóns Ólafssonar.

Verk þessara listamanna eru ólík að útliti, en Anni og Sigurjón eiga það sameiginlegt að hafa skapað óhefðbundin listaverk með gömlu hefðbundnu handverki. Bæði hafa þau unnið í náttúruefni og nýtt sér út í æsar þá möguleika sem efnið leyfði. Verk Anni eru unnin með nál og þræði í silki, hamp eða jafnvel kopar. Verk Sigurjóns á sýningunni eru höggvin í tré, og oft með ýmsum viðbótum, brösuð málmverk eða mótuð í leir,“ segir í tilkynningu.

Þar kemur fram að Anni Bloch er menntuð frá Håndarbejdets Fremmes Seminarium og er af síðustu kynslóð þeirra sem lærðu útsaum. „Hún stundar iðn sína til listsköpunar en jafnframt því hefur hún rannsakað útsaum liðinna alda og það sem útsaumi tengist. Sigurjón Ólafsson (1908-1982) bjó í Danmörku á árunum 1928-45 við nám og störf. Að loknu seinna stríði flutti hann heim og bjó og starfaði við list sína til æviloka. Heimili hans og vinnustofu var síðar breytt og þar er nú safn listaverka hans. Sigurjón var meðal brautryðjenda abstraktlistar á Íslandi auk þess að vera talinn einn helsti portrettlistamaður sinnar samtíðar.“

Anni Bloch leiðir gesti um sýninguna sunnudaginn 2. júní kl. 14. Sýningin stendur til 15. september.