Grindavík Skilafundum er aflýst.
Grindavík Skilafundum er aflýst. — Morgunblaðið/Eggert
Fasteignafélagið Þórkatla hefur aflýst öllum skilafundum sem áttu að fara fram í Grindavík í þessari viku. Er það gert vegna eldgossins. Allir þeir sem höfðu verið boðaðir á fund félagsins hafa fengið skilaboð þess efnis að því er segir í tikynningu frá félaginu

Fasteignafélagið Þórkatla hefur aflýst öllum skilafundum sem áttu að fara fram í Grindavík í þessari viku. Er það gert vegna eldgossins.

Allir þeir sem höfðu verið boðaðir á fund félagsins hafa fengið skilaboð þess efnis að því er segir í tikynningu frá félaginu. Töluverður fjöldi sérfræðinga var í Grindavík er rýming hófst í gær og fylgdu þeir leiðbeiningum almannavarna um að halda þegar í stað burt úr bænum. Þórkatla fylgist áfram náið með þróun mála og mun laga verkferla sína að aðstæðum á meðan ekki er óhætt að vera í Grindavík. Í tilkynningu segir að hugur fasteignafélagsins sé hjá Grindvíkingum.