Ólafur Pálsson
olafur@mbl.is
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur ákveðið að íbúar sveitarfélagsins kjósi um það hvort kjósa eigi um nýtt nafn á sveitarfélaginu. Íbúakosning fer fram samhliða forsetakosningunum á laugardag.
Ef meirihluti fæst fyrir því að nýtt nafn verði valið á sveitarfélagið verður nafnasamkeppni ýtt úr vör. Í kjölfarið verður þá stefnt að því að blása til íbúakosningar um nýtt nafn á sveitarfélaginu, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, samhliða alþingiskosningum að ári.
Sameina sveitina enn frekar
Sylvía Karen Heimisdóttir sveitarstjóri segir að aðdraganda kosningarinnar megi rekja allt til ársins 2002 þegar Skeiðahreppur og Gnúpverjahreppur sameinuðust. Segir hún að nú hafi heyrst háværari raddir í samfélaginu um að sameina mætti sveitina enn frekar og finna sveitarfélaginu nýtt nafn.
Þá viðurkennir sveitarstjórinn að hugsanlega sé núverandi nafn þess ekki það allra þjálasta í orðabókinni.
Sylvía segir ekki um bindandi kosningu að ræða á laugardag en fólkið í sveitinni hafi sýnt þessu mikinn áhuga og vonast hún eftir góðri þátttöku.
Þá lýkur kosningu á laugardaginn í Ölfusi um skipulagstillögur vegna mölunarverksmiðju við Þorlákshöfn. Rafræn kosning hófst þar 18. maí sl.