Tónlistarmennirnir Þorleifur Gaukur Davíðsson, Davíð Þór Jónsson og Skúli Sverrisson blása til tónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld klukkan 20:00. Á tónleikunum munu þeir flytja tónlist af væntanlegri plötu sinni sem ber einfaldlega heitið Davíðsson

Tónlistarmennirnir Þorleifur Gaukur Davíðsson, Davíð Þór Jónsson og Skúli Sverrisson blása til tónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld klukkan 20:00. Á tónleikunum munu þeir flytja tónlist af væntanlegri plötu sinni sem ber einfaldlega heitið Davíðsson. Þá verður ekki einungis flutt tónlist heldur verður stuttmyndin Stages (Sorgarstig) einnig sýnd, en hún vann nýlega verðlaun dómnefndar á kvikmyndahátíðinni RIFF. Miðar eru fáanlegir á vef Salarins, salurinn.kopavogur.is.