Holland Milos Milojevic er núna í Sameinuðu furstadæmunum.
Holland Milos Milojevic er núna í Sameinuðu furstadæmunum. — Morgunblaðið/Hákon
Milos Milojevic, serbneski knattspyrnuþjálfarinn sem lék og þjálfaði lengi á Íslandi, m.a. lið Víkings og Breiðabliks, er orðaður við hollenska stórliðið Feyenoord sem leitar að manni til að taka við af Arne Slot

Milos Milojevic, serbneski knattspyrnuþjálfarinn sem lék og þjálfaði lengi á Íslandi, m.a. lið Víkings og Breiðabliks, er orðaður við hollenska stórliðið Feyenoord sem leitar að manni til að taka við af Arne Slot. Aftonbladet í Svíþjóð segir að Milos sé á lista Feyenoord yfir þá þjálfara sem komi til greina hjá félaginu. Milos þjálfar nú Al Wasl í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en liðið er bæði meistari og bikarmeistari á tímabilinu sem er að ljúka.