Steypti potturinn í garðinum er mikil gersemi en í honum er hægt að njóta útsýnis yfir Eyjafjörðinn.
Steypti potturinn í garðinum er mikil gersemi en í honum er hægt að njóta útsýnis yfir Eyjafjörðinn. — Ljósmyndir/Gunnar Sverrisson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Húsin eru samtals þrjú og voru reist á árunum 2022 og 2023. Aðalhúsið er um 200 fm að stærð og er útihúsið 75 fm ásamt bílskúr. Þau voru ennþá á teikniborðinu þegar Berglind fékk verkefnið í hendurnar

Húsin eru samtals þrjú og voru reist á árunum 2022 og 2023. Aðalhúsið er um 200 fm að stærð og er útihúsið 75 fm ásamt bílskúr. Þau voru ennþá á teikniborðinu þegar Berglind fékk verkefnið í hendurnar. Hún segist því hafa fengið að koma að hönnuninni sjálfri og náð að hafa nokkur áhrif á skipulagið.

„Þetta verk í heild sinni er afskaplega vel heppnað, vel skipulagt og úthugsað í þaula. Mér var sýnt mjög mikið traust hvað varðar hönnunina sjálfa sem er einstakt í svona viðamiklu verkefni,“ segir Berglind.

Hverjar voru óskir húsráðenda?

„Eigendur vildu fyrst og fremst skapa fallegt og notalegt „annað heimili“ sem væri samt sem áður allt öðruvísi en heimili þeirra í bænum. Hugmyndin var einnig að leigja húsið út til ferðamanna og fannst okkur því mikilvægt að hafa grunninn einfaldan, með hlýlegu og notalegu yfirbragði en um leið mjög praktískan sem myndi standast tímans tönn,“ segir Berglind.

Notalegheit voru í forgrunni þegar húsið var hannað og vildi Berglind ná fram ákveðinni ró með ljósum og dempuðum jarðtónum í alrými en dekkri brúntóna lit inni í svefnherbergjum og á baðherbergjum. Hún notaði svarta sprautulakkaða eik og svart granít í innréttingar.

„Ég passaði upp á að hafa samræmi í lita- og efnisvali svo fallegt flæði myndi skapast á milli rýma og húsanna. Ég notaði svartar „terrasso“-flísar frá Agli Árnasyni á öll gólf en í svefnherbergjum varð fallegt og notalegt parket frá Birgissyni fyrir valinu. Svo setti ég flennistórar mottur frá Magnolia í öll rými til að skapa hlýleika og mýkt. Bekkurinn við gluggann skapar einnig skemmtilega stemmningu og svo setur arinninn í stofunni punktinn yfir i-ið,“ segir Berglind.

Útsýnisgarður

Eigendurnir hönnuðu garðinn sjálfir með góðum árangri en í garðinum er steyptur pottur sem er til mikillar prýði.

„Eigendur sáu alfarið um garðinn og lóðina sjálfir. Eins hannaði eigandinn sjálfur útipottinn sem er niðurgrafinn og steyptur á staðnum. Hann býr til ótrúlega skemmtilega og notalega stemmningu og útsýnið frá honum er himneskt, beint út á fjörðinn. Eins bjó eigandinn til ofboðslega fallega gönguleið frá útihúsi að aðalhúsi sem vísar beint út á fjörðinn,“ segir Berglind.

Það er hægt að slaka vel á í steypta pottinum en í húsinu er líka sána. Þegar Berglind er spurð að því hvort slíkt njóti vinsælda í dag segir hún svo vera.

„Ég er mikill aðdáandi sána, og sérstaklega þurrgufa. Eigandinn var einnig með þá ósk, og okkur fannst það mjög mikilvægt, að gengið væri inn í sánuna innan frá úr húsinu en ekki að utan. Ég tel það vera mikil mistök að fara inn í sánu utan frá, það tapast svo mikill hiti við það. Sánan sjálf er mjög vel heppnuð. Þegar setið er inni í sánunni sjálfri er maður með beint útsýni niður á fjörðinn. Mjög rómantísk og falleg sýn,“ segir Berglind.

Hverju er fólk að kalla eftir þegar sumarhús eru annars vegar?

„Mér finnst ofboðslega gaman að hanna sumarhús því þetta eru ekki aðalheimili fólks og eru því eigendur oftar en ekki til í að gera eitthvað allt öðruvísi en heima hjá sér. Í grunninn eru flestir þó alltaf að leita að því sama: Afslöppuðu og notalegu yfirbragði, þar sem kyrrð og ró ríkir,“ segir Berglind.

Höf.: Marta María Winkel Jónasdóttir |