Þórdís Erla Zoëga
Þórdís Erla Zoëga
Ásmundarsalur flakkar um borgina með færanlega listsýningu undir yfirskriftinni Hringferð í Smástundarsal 2.-17. júní. Þar má upplifa alltumlykjandi innsetningu þeirra Þórdísar Erlu Zoëga og Shu Yi

Ásmundarsalur flakkar um borgina með færanlega listsýningu undir yfirskriftinni Hringferð í Smástundarsal 2.-17. júní. Þar má upplifa alltumlykjandi innsetningu þeirra Þórdísar Erlu Zoëga og Shu Yi. „Umbreyttur gámur mun heimsækja fjóra staði víðsvegar um borgina þar sem gestum býðst að stíga inn, kanna rýmið í kyrrð, velta vöngum og kveikja á öllum skynfærum,“ segir í tilkynningu.

„Listakonurnar deila brennandi áhuga á að skoða hvernig við skynjum rými og hér skapa þær sýningu þar sem fagurfræðileg sýn fléttast saman við frásagnir ólíkra menningarheima og úr verður leiftrandi samtal austurs og vesturs. Hringferð rýfur efnisleg mörk og hrífur gesti með sér inn í kjarna verksins.“

Nánari upplýsingar um staðsetningar má finna á listahatid.is.