60 ára Gunnar fæddist á Hvolsvelli og ólst þar upp fyrstu árin en frá átta ára aldri á Stokkseyri. Hann býr nú í Grafarvogi. Gunnar er húsasmiður að mennt og hefur rekur eigið fyrirtæki, Smiðsafl, ásamt mági sínum frá 1999

60 ára Gunnar fæddist á Hvolsvelli og ólst þar upp fyrstu árin en frá átta ára aldri á Stokkseyri. Hann býr nú í Grafarvogi. Gunnar er húsasmiður að mennt og hefur rekur eigið fyrirtæki, Smiðsafl, ásamt mági sínum frá 1999. Áhugamálin eru hjólreiðar og önnur líkamsrækt og garðrækt.


Fjölskylda Maki Gunnars er Guðrún Rut Erlingsdóttir, f. 1963, vinnur í móttöku Háskólans í Reykjavík. Dætur þeirra eru Dana Rut, f. 1992, og Gabríela, f. 1997. Börn Gunnars frá fyrra sambandi eru Ágúst Aron, f. 1982, og Birta Hlíf, f. 1985. Dótturdóttir Gunnars og Guðrúnar Rutar er Kristín Rut Hákonardóttir, dóttir Dönu Rutar. Foreldrar Gunnars voru hjónin Magnús Sigurjónsson, f. 1932, d. 2021, og VIktoría Þorvaldsdóttir, f. 1937, d. 2007, garðyrkjubændur á Stokkseyri.