— Morgunblaðið/Eyþór
Atkvæðagreiðslu utan kjörfundar vegna forsetakosninganna lauk í Holtagörðum í Reykjavík klukkan 22 í gærkvöld. Þar hefur utankjörfundaratkvæðagreiðsla verið daglega klukkan 9-22 frá 3. maí, fyrir utan tvo rauða frídaga

Atkvæðagreiðslu utan kjörfundar vegna forsetakosninganna lauk í Holtagörðum í Reykjavík klukkan 22 í gærkvöld. Þar hefur utankjörfundaratkvæðagreiðsla verið daglega klukkan 9-22 frá 3. maí, fyrir utan tvo rauða frídaga.

Atkvæðaseðlarnir eru í innsigluðum viðarkössum, í ýmsum litum, sem eru merktir hverju kjördæmi fyrir sig. Hér má sjá kjörstjórnarstarfsmann bera tvo slíka kassa af atkvæðum. Kassarnir voru heldur léttari í ár en í síðustu forsetakosningum, árið 2020. Aðsóknin var með svipuðu móti í ár og árið 2016, en þá kusu 44.954 utan kjörfundar. Þau sem komast ómögulega á sinn kjörstað á kjördag geta kosið í Holtagörðum frá klukkan 10-17 í dag.