Viðurkenning Luka Doncic var valinn bestur í Vesturdeildinni.
Viðurkenning Luka Doncic var valinn bestur í Vesturdeildinni.
Dallas Mavericks tryggði sér í fyrrinótt meistaratitil Vesturdeildar NBA-körfuboltans með því að vinna Minnesota Timberwolves, 124:103, í fimmta leik liðanna í Minneapolis. Dallas mætir því Boston Celtics í úrslitaeinvíginu um meistaratitilinn sem…

Dallas Mavericks tryggði sér í fyrrinótt meistaratitil Vesturdeildar NBA-körfuboltans með því að vinna Minnesota Timberwolves, 124:103, í fimmta leik liðanna í Minneapolis. Dallas mætir því Boston Celtics í úrslitaeinvíginu um meistaratitilinn sem hefst næsta fimmtudagskvöld og leikur til úrslita í fyrsta sinn í 13 ár, eða síðan liðið varð meistari 2011. Kyrie Irving og Luka Doncic skoruðu 36 stig hvor fyrir Dallas og Doncic tók 10 fráköst.