Taylor Swift í Lissabon.
Taylor Swift í Lissabon. — AFP/Andre Dias Noble
Tónlist Nú stendur yfir tónleikaferðalag Taylor Swift og þegar hún tróð upp í Lissabon í Portúgal kom hún aðdáendum sínum heldur betur á óvart. Þegar hún mætti á svið heilsaði hún áhorfendum með línunni „muito obrigada“ eða „takk fyrir“ á portúgölsku

Tónlist Nú stendur yfir tónleikaferðalag Taylor Swift og þegar hún tróð upp í Lissabon í Portúgal kom hún aðdáendum sínum heldur betur á óvart. Þegar hún mætti á svið heilsaði hún áhorfendum með línunni „muito obrigada“ eða „takk fyrir“ á portúgölsku. Einnig talaði hún við tæknimennina á portúgölsku þegar hún þarfnaðist hjálpar; sagði þá við þá „ajuda por favor“ sem þýðir „get ég fengið hjálp“. Þetta vakti mikla lukku hjá aðdáendum sem fylgdust með í Lissabon, en næst á dagskrá hjá tónlistarkonunni eru tónleikar í Madrid á Spáni. Það verður áhugavert að sjá hvort hún heldur áfram að heilsa heimamönnum á þeirra tungumáli.