Boðað hefur verið til aukafundar í borgarstjórn Reykjavíkur til að ræða um lán sem sótt var um hjá Þróunarbanka Evrópuráðsins. „Þetta er aukafundur sem kemur okkur í minnihlutanum á óvart. En þarna á væntanlega að fjalla um lánsumsókn borgarinnar til Þróunarbanka Evrópuráðsins

Boðað hefur verið til aukafundar í borgarstjórn Reykjavíkur til að ræða um lán sem sótt var um hjá Þróunarbanka Evrópuráðsins. „Þetta er aukafundur sem kemur okkur í minnihlutanum á óvart. En þarna á væntanlega að fjalla um lánsumsókn borgarinnar til Þróunarbanka Evrópuráðsins. Eins og þekkt er orðið hefur borginni gengið illa að fjármagna sig með skuldabréfaútboðum. Nú þarf því að leita til þróunarbankans og það lýsir stöðunni vel,“ segir Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðismanna.

Upphæð lánsins er 15 milljarðar króna og eru þeir eyrnamerktir til viðhalds í leik- og grunnskólum í borginni. Er það um helmingur þess fjár sem áætlað er að veita í verkefnið. Einar Þorsteinsson borgarstjóri segir að boðað hafi verið til fundarins nú sökum þess að vinnu við lánsumsókn Reykjavíkurborgar hafi verið að ljúka. „Lántakan er innan þeirrar lántökuáætlunar sem við höfum þegar samþykkt og ekki til viðbótar við þá áætlun sem þegar hefur verið gerð. Þarna eru betri kjör en hafa boðist annars staðar,“ segir Einar. vidar@mbl.is