Kristinn Pálsson úr Val og Birna Valgerður Benónýsdóttir úr Keflavík voru í gær útnefnd leikmenn ársins í úrvalsdeildum karla og kvenna í körfuknattleik.
Tómas Valur Þrastarson úr Þór í Þorlákshöfn og Kolbrún María Ármannsdóttir úr Stjörnunni voru valin bestu ungu leikmennirnir.
Sigurður Pétursson úr Keflavík og Ísold Sævarsdóttir úr Stjörnunni voru valin bestu varnarmennirnir.
Benedikt Guðmundsson úr Njarðvík og Sverrir Þór Sverrisson úr Keflavík voru valdir þjálfarar ársins.
Remy Martin úr Keflavík og Lore Devos úr Þór á Akureyri voru valin bestu erlendu leikmennirnir.
Haukur Helgi Pálsson úr Álftanesi og Þóra Kristín Jónsdóttir úr Haukum voru prúðustu leikmennirnir.
Sigmundur Már Herbertsson var valinn dómari ársins.
Sjálfboðaliðar Grindavíkur og Breiðabliks voru valdir sjálfboðaliðar ársins. Nánar á mbl.is.