Björgunarsveitir voru kallaðar út til þess að sækja veikan einstakling á Langjökul í gærkvöldi. Meðal annars voru notaðir snjósleðar til þess að komast að honum. Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar gat ekki upplýst hvernig ástand…

Björgunarsveitir voru kallaðar út til þess að sækja veikan einstakling á Langjökul í gærkvöldi. Meðal annars voru notaðir snjósleðar til þess að komast að honum. Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar gat ekki upplýst hvernig ástand einstaklingsins var á tíunda tímanum í gær en þá var hann kominn í sjúkrabíl og á leið til byggða.