Norður
♠ D6432
♥ D42
♦ 632
♣ 65
Vestur
♠ 5
♥ 875
♦ KG108
♣ ÁG1097
Austur
♠ 987
♥ G1093
♦ D97
♣ D82
Suður
♠ ÁKG10
♥ ÁK6
♦ Á54
♣ K43
Suður spilar 3G.
Gölturinn fann engan penna og greip til raddbandanna í staðinn: „Þið eigið drottningu fimmtu, drottningu þriðju, þrjá hunda og tvo hunda.“
„Ég segi pass,“ sagði Óskar ugla stríðnislega og fékk bágt fyrir.
„Enga aulabrandara, takk fyrir! Makker opnar á sterku laufi og stekkur í tvö grönd í næsta hring til að sýna 22-23 punkta flata. Nú máttu tala ef þú hefur eitthvað að segja!“
„Rólegir piltar.“ Magnús mörgæs er friðarins maður: „Er ekki best að yfirfæra í spaða og láta makker svo um framhaldið?“
Það hefðu víst flestir gert, en ekki Joe Grue þegar spilið kom upp í úrslitaleik bandarísku landsliðskeppninnar. Grue hækkaði einfaldlega í 3G og makker hans Brad Moss lagði snarlega upp níu slagi. Á hinu borðinu „fundu“ NS spaðafittið og enduðu í 4♠, einn niður.