Árni H. Guðbjartsson fæddist 21. nóvember 1945. Hann lést 3. maí 2024.

Útför Árna fór fram 21. maí 2024.

Elsku pabbi, ég átti ekki von á því þann 3. maí að fá þær fregnir að þú værir dáinn en ég er í sannleika sagt enn að melta þessar fréttir. Pabbi, þú varst vinur minn, við gerðum mikið saman bæði þegar ég var krakki og líka þegar ég var orðinn eldri og mér fannst alltaf gaman að umgangast þig. Í hvern á ég að hringja á fimmtudögum núna eða við hvern á ég að tuða um pólitík og handbolta? Þetta verður ekki eins. Ég finn fyrir miklum söknuði að þú sért ekki lengur hjá okkur. Eftir að þú fluttir aftur austur og komst í bæinn þá gistir þú stundum hjá okkur í S2 og þér fannst alltaf of mikið fyrir þér haft að við Sigrún færum úr rúmi fyrir þig. Mér verður oft hugsað um ferðina okkar sem við fórum í til Kanarí, hrikalega var þetta góð ferð, kannski of heitt fyrir þig en ég held og vona að þú hafir skemmt þér vel.

Elsku pabbi minn, nú kveð ég þig með söknuði og knúsaðu mömmu frá mér.

Þinn sonur og vinur,

Guðbjartur Árnason.