Eitt verka Erlu.
Eitt verka Erlu.
Myndlistarkonan Erla Axels opnar 30. einkasýningu sína í dag í Listaseli við Selvatn. Þar sýnir hún 34 verk frá síðustu tveimur árum. Erla hefur málað með pastel og olíu, ásamt blandaðri tækni á pappír, og sýnt verk sín bæði heima og víða erlendis

Myndlistarkonan Erla Axels opnar 30. einkasýningu sína í dag í Listaseli við Selvatn. Þar sýnir hún 34 verk frá síðustu tveimur árum. Erla hefur málað með pastel og olíu, ásamt blandaðri tækni á pappír, og sýnt verk sín bæði heima og víða erlendis. Árið 2007 réðst Erla, ásamt manni sínum, í að byggja vinnustofu og sýningarsal við Selvatn á Miðdalsheiði. Erla hefur sýnt verk sín annað hvert ár síðan Listasel þeirra var opnað. Sýningin stendur til 9. júní.