[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
‚Ef hávaðinn hérna inni væri eins og fylgið þá værum við búin að vinna þessar kosningar. Halla Hrund Logadóttir ‚Ég gæti ekki eina viku í viðbót af þessu. Ég gæti ekki svarað einu sinni enn spurningum um málskotsréttinn án þess að öskra

‚Ef hávaðinn hérna inni væri eins og fylgið þá værum við búin að vinna þessar kosningar.

Halla Hrund Logadóttir

‚Ég gæti ekki eina viku í viðbót af þessu. Ég gæti ekki svarað einu sinni enn spurningum um málskotsréttinn án þess að öskra.

Jón Gnarr

‚Ég er búin að vanrækja heimili mitt. Ég er ekki búin að taka til í tvo mánuði og börnin mín og kettirnir mínir hafa varla séð mig.

Ásdís Rán Gunnarsdóttir

‚Þetta er held ég búið að vera allra mesta ævintýri sem ég hef nokkurn tímann lent í á ævinni. Mér var sagt einmitt fyrir fram að ég myndi væntanlega fá tveggja til þriggja ára lífsreynslu á þessum tveimur mánuðum og það hefur eiginlega verið þannig.

Helga Þórisdóttir

‚Það er mjög sérstakt að vera allt í einu hinum megin við borðið. Maður þarf að setja sig í alveg nýjar stellingar til þess. Ég ætla að bíða aðeins með það að bregða mér í hlutverk stjórnmálaskýrandans, ég bíð kannski með það fram á næstu kosningar.

Baldur Þórhallsson