Hátíðahöld af ýmsu tilefni hafa orðið að myndefni hjá ljósmyndurum AFP-fréttaveitunnar undanfarna daga. Ljósahátíð í Singapúr, kvikmyndahátíð í Perú og lúðrasveitarkeppni á Englandi er meðal þess sem vakti athygli þeirra. Litadýrð og þjóðlegir búningar einkenndu svo hátíðirnar á Indlandi og í Indónesíu sem einnig má sjá í þessari myndasyrpu.