Þjófnaður Stolin hönnun hjá Temu.
Þjófnaður Stolin hönnun hjá Temu.
Danir eru með böggum hildar vegna þess að eftirlíkingar af Lego streyma nú frá Kína á gjafverði frá kínverska netverslunarrisanum Temu og sama gildir um danska hönnunarvöru. Við Íslendingar erum ekki undanskildir því flækjupúðar Ragnheiðar Aspar…

Danir eru með böggum hildar vegna þess að eftirlíkingar af Lego streyma nú frá Kína á gjafverði frá kínverska netverslunarrisanum Temu og sama gildir um danska hönnunarvöru. Við Íslendingar erum ekki undanskildir því flækjupúðar Ragnheiðar Aspar Sigurðardóttur eru skrumskældir og seldir á síðunni á gjafverði. Púðarnir kosta 21.900 krónur í vefverslun Epals en kínverska útgáfan hjá Temu kostar rúmar 2.500 krónur.

Fyrirtækið auglýsir grimmt á samfélagsmiðlum og virðist uppskera því sendingum frá Kína hingað til lands hefur fjölgað hratt. Versluninni hefur verið lýst sem „Amazon á sterum“ en þar er hreint ótrúlegt úrval af vörum. Verðið er í sumum tilfellum aðeins brot af því sem vörurnar kosta í hefðbundnum verslunum. Fríverslunarsamningur er í gildi milli Íslands og Kína og því þarf ekki að greiða toll af umræddum vörum. » 14