Halla Tómasdóttir
Halla Tómasdóttir
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Nú árið 2024, 80 árum eftir að forseti lýðveldisins var fyrst kjörinn, gerist það að þjóðkjörinn forseti kemur í fyrsta sinn af hægri væng stjórnmálanna til Bessastaða,“ skrifaði Björn Bjarnason á vefsíðu sína í gær:

Nú árið 2024, 80 árum eftir að forseti lýðveldisins var fyrst kjörinn, gerist það að þjóðkjörinn forseti kemur í fyrsta sinn af hægri væng stjórnmálanna til Bessastaða,“ skrifaði Björn Bjarnason á vefsíðu sína í gær:

Halla Tómasdóttir sigraði í forsetakosningunum í gær (1. júní). Ég óska henni innilega til hamingju.

Hennar bíður erfitt verkefni sem hún segist ætla að leysa af hendi með því að sameina þjóðina að baki sér.

Að kvöldi kjördags minntist hún sérstaklega á unga fólkið þegar hún þakkaði þeim sem börðust fyrir hana. Hún hefði einnig átt að þakka þeim forystumönnum sem lögðu öðrum frambjóðendum lið fram á síðasta dag en hvöttu svo kjósendur á síðustu stundu til að kjósa Höllu T. í því skyni að koma í veg fyrir að Katrín Jakobsdóttir sigraði.

Greinendur úrslitanna eru sammála um að margir hafi ráðstafað atkvæði sínu á þennan veg þegar á hólminn var komið.

Úr úrslitum kosninganna í samanburði við skoðanakannanir megi lesa að ýmsir þeirra sem í könnunum lýstu yfir stuðningi við Höllu Hrund Logadóttur eða Baldur Þórhallsson hafi í kjörklefanum sett kross við nafn Höllu Tómasdóttur og því í reynd kosið gegn Katrínu Jakobsdóttur.“