[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
‚Ég hef æðislega gaman af því að sjá fólkið og auðvitað vill maður styðja alla, við erum þjóð og þetta er æðislega fallegt og það verður mjög spennandi að sjá þegar Halla og fjölskyldan koma. Ég hef trú á Höllu

‚Ég hef æðislega gaman af því að sjá fólkið og auðvitað vill maður styðja alla, við erum þjóð og þetta er æðislega fallegt og það verður mjög spennandi að sjá þegar Halla og fjölskyldan koma. Ég hef trú á Höllu.

Hafsteinn Þór Guðjónsson.

‚Við erum komnar hér til að styðja Höllu, við erum frændfólk hennar og höfum alltaf fylgst með henni og verið mjög stoltar af henni alveg síðan 2016. Við höfum fylgst með ferli hennar og erum mjög glaðar að vera hérna. Ég held að hún muni standa sig mjög vel.

Helena Ingrid
Gunnarsdóttir Langdal

‚Ég var alveg nánast sannfærður um það síðustu vikur að hún myndi vinna þetta, það var svo mikill meðbyr með henni. Mér finnst hún mjög spennandi kostur. Ég kaus hana núna og líka 2016. Ég var algjörlega öruggur í gær að hún myndi vinna þetta.

Helgi Ólafsson.

‚Ég held að hún verði bara frábær forseti, hún er glaðleg, jákvæð, falleg og flott kona. Mér hefur alltaf litist vel á hana, hún er búin að gera svo margt frábært. Ég hafði alltaf trú á henni og var að vona að hún yrði næsti forseti Íslands.

Aðalbjörg Baldursdóttir.

‚Ég mætti til að styðja við mína konu. Mér líst frábærlega á Höllu sem næsta forseta og ég held að hún verði bara mjög góður forseti. Hún hefur verið mín kona frá byrjun, þrátt fyrir lítið fylgi hafði ég alltaf trú.

Birkir Snær Sigurðsson.