Norður
♠ 1095
♥ 5432
♦ G96
♣ 1087
Vestur
♠ ÁKD
♥ DG9
♦ 10732
♣ 654
Austur
♠ G6432
♥ –
♦ K854
♣ G932
Suður
♠ 87
♥ ÁK10876
♦ ÁD
♣ ÁKD
Suður spilar 4♥.
Gölturinn var í upphöfnu skapi: „Hættulegustu mistökin í brids – og svo sem í lífinu sjálfu, ef út í það er farið – eru þau að sjá ekki vandann fyrr en of seint. Að fljóta sofandi að feigðarósi.“ Suður spilar 4♥ eftir opnun á alkröfu og litlar undirteknir norðurs. Útspilið er spaðaás.
„Og nú bið ég ykkur, kæru vinir, að setja ykkur í spor vesturs. Blindur er meinleysið uppmálað og fátt virðist eðlilegra en að þruma út þremur efstu í spaða og bíða svo í makindum eftir komandi góðgjörðum. En sú værð vissunnar er ávísun á mikil vandræði.“
Þau vandræði sem Gölturinn hefur í huga eru þessi: Suður trompar þriðja spaðann og leggur niður hjartaás. Eftir að hafa bölvað legunni í stutta stund sér sagnhafi skemmtilega vinningsleið: Hann tekur á hjartakóng og ♣ÁKD. Spilar svo hjarta. „Og vestur vaknar upp með andfælum.“